Beint á leiðarkerfi vefsins
Leiðakerfi neytenda

Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa

Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa fjallar um hvers konar ágreining milli aðila um réttindi og skyldur við lausafjár-, þjónustu- og neytendakaup og er aðilum er heimilt að leita til nefndarinnar með ágreiningsefni sín.

Kærunefndin starfar samkvæmt reglugerð (nr. 766/2006) og er hlutverk hennar að gefa álit á ágreiningi sem varðar réttindi og skyldur samkvæmt lögum (nr. 50/2000) um lausafjárkaup, lögum (nr. 42/2000) um þjónustukaup og lögum (nr. 48/2003) um neytendakaup. Kærunefnd veitir ekki umsagnir um fræðilegar spurningar, heldur tekur afstöðu til krafna aðila. 

Neytendastofa tekur við málskotum neytenda, sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.

Kostnaður

Kostnaður við störf kærunefndar greiðist úr ríkissjóði og er málsmeðferðin því aðilum málsins að kostnaðarlausu. Kostnað við eigin gagnaöflun greiða málsaðilar.

Upplýsingar og gögn 

Eyðublaðið hér fyrir neðan er ætlað að auðvelda almenningi að koma erindi á framfæri við nefndina og tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir þegar í upphafi. Það er ekki skilyrði fyrir meðferð nefndarinnar að eyðublaðið sé notað, en tilgreina verður gagnaðila, enda á hann lögvarinn rétt til að tjá sig um mál. Taka verður skýrt fram hvaða kröfur eru gerðar. Með álitsbeiðni verða að fylgja þau gögn sem varpað geta ljósi á mál.

Málalyktir

Álit nefndarinnar eru skrifleg og rökstudd og skulu að jafnaði veitt innan átta vikna frá því að nefndin tók mál til efnislegrar umfjöllunar. Niðurstöðu nefndarinnar verður ekki skotið til annars stjórnvalds en málsaðilar geta ávallt á hvaða stigi máls sem er ákveðið að leggja mál sitt fyrir dómstóla.

Upplýsingar um þann sem ber fram kvörtun
Upplýsingar um þann sem kvörtun beinist að
Hvaða kröfur voru gerðar?
Það sem farið er fram á í málinu, t.d. peningafjárhæð, vextir, úrbætur, viðurkenning á réttindum, lausn undan skyldu, afhending eða annað sem gæti átt við. (Hámark 8000 stafir. Ef textinn er lengri má senda hann í viðhengi.)
Málavextir og rökstuðningur
Gera skal skilmerkilega grein fyrir ágreiningi aðila. (Hámark 8000 stafir. Ef textinn er lengri má senda hann í viðhengi.)
ríkissaksóknara
dómstóla
lögreglustjóra- / sýslumannsembætti
Ruslpóstvörn, Vinsamlega sláðu inn tölurnar á myndinni hér að ofan

Upplýsingar um þitt erindi

Engin erindi í vinnslu...

Mín erindi:

Mín erindi

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta