Úrskurðarnefnd um efnalaugar og þvottahús fjallar um kvartanir neytenda vegna kaupa á þjónustu sem seldar eru af aðilum sem eru í Félagi efnalaugseigenda.
Athygli er vakin á því að áður en leitað er til nefndarinnar skal kærandi hafa reynt að ná fram rétti sínum gagnvart seljanda án tilefnislauss dráttar.
Neytendasamtökin tekur við málskotum, sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.
Málskotsgjald
Kærandi skal greiða málskotsgjald kr. 1.000 en falli mál að hluta eða öllu leyti kæranda í vil skal seljanda greiða málskotsgjaldið. Kostnað við eigin gagnaöflun greiða málsaðilar.
Upplýsingar og gögn
Eyðublaðið hér fyrir neðan er ætlað að auðvelda almenningi að koma erindi á framfæri við nefndina og tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir þegar í upphafi. Það er ekki skilyrði fyrir meðferð nefndarinnar að eyðublaðið sé notað, en tilgreina verður gagnaðila, enda á hann rétt til að tjá sig um mál.
Taka verður skýrt fram hvaða kröfur eru gerðar. Mikilvægt er að málskotinu fylgi gögn sem upplýsi um þann ágreining sem fyrir hendi er og afstöðu aðila, þannig að unnt sé að úrskurða í málinu. Góður undirbúningur auðveldar störf nefndarinnar og flýtir fyrir lyktum málsins.
Málalyktir
Álit nefndarinnar eru skrifleg og rökstudd og skulu að jafnaði veitt innan fjögurra vikna frá því að mál taldist úrskurðarhæft. Neytandinn getur ávallt, á hvaða stigi máls sem er, ákveðið að leggja mál sitt fyrir dómstóla. Fyrirtækin skuldbinda sig til að fylgja ákvörðun nefndarinnar og að greiða hugsanlegar bætur innan fjögurra vikna frá úrskurðardegi, en geta, hafi úrskurðurinn veruleg fjárhagsleg útgjöld í för með sér eða fordæmisgildi, tilkynnt að það sætti sig ekki við úrskurðinn og muni ekki greiða bætur nema að undangengum dómi.