Úrskurðarnefnd um tannlækningar fjallar skv. samþykktum nefndarinnar um kvartanir vegna kaupa á þjónustu tannlækna sem eru í Tannlæknafélagi Íslands.
Athygli er vakin á því að áður en neytandi leitar til nefndarinnar skal hann hafa reynt að ná fram rétti sínum gagnvart seljanda skriflega og án tilefnislauss dráttar.
Neytendasamtökin tekur við málskotum, sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.
Málskotsgjald
Kærandi skal greiða málskotsgjald kr. 5.000 en falli mál að hluta eða öllu leyti kæranda í vil skal seljanda greiða málskotsgjaldið. Kostnað við eigin gagnaöflun greiða málsaðilar.
Upplýsingar og gögn
Eyðublaðið hér fyrir neðan er ætlað að auðvelda almenningi að koma erindi á framfæri við nefndina og tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir þegar í upphafi. Það er ekki skilyrði fyrir meðferð nefndarinnar að eyðublaðið sé notað, en tilgreina verður gagnaðila, enda á hann rétt til að tjá sig um mál.
Taka verður skýrt fram hvaða kröfur eru gerðar. Mikilvægt er að málskotinu fylgi gögn sem upplýsi um þann ágreining sem fyrir hendi er og afstöðu aðila, þannig að unnt sé að úrskurða í málinu. Góður undirbúningur auðveldar störf nefndarinnar og flýtir fyrir lyktum málsins.
Málalyktir
Nefndin á að taka mál fyrir innan fjögurra vikna frá því að hún taldi málið úrskurðarhæft. Álit nefndarinnar eru skrifleg og rökstudd. Neytandinn getur ávallt, á hvaða stigi máls sem er, ákveðið að leggja mál sitt fyrir dómstóla.