Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki fjallar um ágreining viðskiptamanna við lánastofnanir (t.d. viðskiptabanka eða sparisjóð), verðbréfafyrirtæki, eða dótturfyrirtæki þessara fjármálafyrirtækja. Einnig fjallar nefndin um ágreining um yfirfærslur á milli viðskiptareikninga milli landa. Fjármálaeftirlitið tekur við málskotum viðskiptamanna og sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir hana.
Hverjir geta leitað til nefndarinnar?
Viðskiptamenn sem eru í samningssambandi við viðkomandi fjármálafyrirtæki geta snúið sér til nefndarinnar og þurfa ekki samþykki fjármálafyrirtækis fyrir málskoti.
Málskotsgjald
Sé viðskiptamaður einstaklingur greiðir hann málskotsgjald, kr. 5.000. Málskotsgjald þetta fær viðskiptamaður endurgreitt við afhendingu úrskurðar ef krafa hans er að hluta eða öllu leyti tekin til greina.
Neytendur greiða málskotsgjalðið inn á reikning Fjármálaeftirlitsins (0526-26-402, kt. 541298-3209) og senda síðan málskotið til nefndarinnar.
Upplýsingar og gögn
Mikilvægt er að málskotinu fylgi gögn sem upplýsi um þann ágreining sem fyrir hendi er og afstöðu aðila þ. á m. röksemdir fyrir kvörtun, sjónarmið málskotsaðilans o.s.frv. sjá nánar málskotseyðublaðið, þannig að unnt sé að úrskurða í málinu. Góður undirbúningur auðveldar störf nefndarinnar og flýtir fyrir lyktum málsins.