Beint á leiðarkerfi vefsins
Leiðakerfi neytenda

Sáttaumleitun sýslumanns

Í mörgum tilfellum er möguleiki á að vísa mál, sem ekki hefur verið tekið fyrir í dómstól, til sáttaumleitana sýslumanns. Jafnt einstaklingar sem lögaðilar geta óskað sáttaumleitana sýslumanns, en báðir aðila þurfi að samþykkja sáttaumleitan áður en málið kemur til sýslumanns. Sáttaumleitanir eru án kostnaðar fyrir aðila.   

Þegar sáttaumleitunum er vísað til sýslumanns skal láta honum í té þau málsgögn sem þörf krefur. Sýslumaður kveður síðan aðila á sinn fund og reyna með þeim sættir. Heimilt er að óska eftir að farið verði með upplýsingar í trúnaði.

Sýslumaður fellir niður sáttaumleitanir ef sáttafundur er ekki sóttur af hendi beggja aðila eða þegar hann telur annars sýnt að þær beri ekki árangur. Ef sátt tekst fyrir sýslumanni felur hún í sér lok dómsmáls og er bókuð í sérstakri gerðabók. Ef sátt tekst að nokkru leyti en ekki öllu má halda málið áfram fyrir dómi.

Leiðbeiningar um útfyllingu á eyðublaði fyrir beiðni um sáttaumleitun:

  • Báða aðila verður að tilgreina skilmerkilega.
  • Nauðsynlegt er að gera sem gleggsta grein fyrir ágreiningsatriðum.
  • Með beiðni verða að fylgja þau gögn sem geta varpað ljósi á málið.
  • Skilyrði fyrir sáttaumleitun er að báðir aðilar samþykki sáttaumleitunar sýslumanns. 
  • Aðilar mega semja um til hvaða sýslumanns þeir leita með sáttaumleitan, en að jafnaði fer hún fram í því umdæmi sem einhver aðila eiga lögheimili eða þar sem ágreiningur stofnaðist.
Sýslumannsembætti

Eyðublað

Sýslumaðurinn á Akranesi 

Sækja 

Sýslumaðurinn á Akureyri

Sækja 

Sýslumaðurinn á Blönduósi

Sækja 

Sýslumaðurinn í Bolungarvík

Sækja 

Sýslumaðurinn í Borgarnesi

Sækja 

Sýslumaðurinn í Búðardal

Sækja 

Sýslumaðurinn á Eskifirði

Sækja 

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði

Sækja 

Sýslumaðurinn í Hólmavík

Sækja 

Sýslumaðurinn á Húsavík

Sækja 

Sýslumaðurinn á Hvolsvelli

Sækja 

Sýslumaðurinn á Höfn

Sækja 

Sýslumaðurinn á Ísafirði

Sækja 

Sýslumaðurinn í Keflavík

Sækja 

Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli

Sækja 

Sýslumaðurinn í Kópavogi

Sækja 

Sýslumaðurinn á Patreksfirði

Sækja 

Sýslumaðurinn í Reykjavík

Sækja 

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki

Sækja 

Sýslumaðurinn á Selfossi

Sækja 

Sýslumaðurinn á Seyðisfirði

Sækja 

Sýslumaðurinn á Siglufirði

Sækja 

Sýslumaðurinn í Stykkishólmi

Sækja 

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum

Sækja 

Sýslumaðurinn í Vík

Sækja 


Upplýsingar um þitt erindi

Engin erindi í vinnslu...

Mín erindi:

Mín erindi

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta